Afhentu fegrunarviðurkenningar

Að lokinni afhendingu í Höfða í dag.
Að lokinni afhendingu í Höfða í dag.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Hjálmar Sveinsson formaður umhverfis- og skipulagsráðs afhentu í dag viðurkenningar fyrir fallegar lóðir fjölbýlishúsa og fyrirtækja, fallega útiaðstöðu við sumargötur og vandaðar endurbætur á eldri húsum í Reykjavík.

Viðurkenningarnar hlutu fjórar lóðir, kaffihús við sumargötur og fjögur hús.

Þjónustu- og stofnanalóðir:

  • Suðurlandsbraut 58-64 og 66 - Mörkin þjónustuíbúðir og hjúkrunarheimili
  • Engjateigur 11

Fjölbýlishúsalóðir:

  • Maríubakki 2-16
  • Hæðargarður 31-35

Sumargötur:

  • Skólavörðustígur 3A, Mokka kaffi

Hús:

  • Grettisgata 35B
  • Hringbraut 109-115
  • Framnesvegur 55-57
  • Láland 22

Umhverfis- og skipulagsráð Reyjavíkur veitir viðurkenningarnar eftir tilnefningar frá vinnuhópum. Í þeim sátu:

Vegna viðurkenninga fyrir lóðir fjölbýlishúsa og fyrirtækja/stofnana:

Björn Ingi Edvardsson, landslagsarkitekt, og Valný Aðalsteinssdóttir, verkefnisstjóri á umhverfis- og skipulagssviði.

Vegna viðurkenninga fyrir endurbætur á eldri húsum:

Drífa Kristín Þrastardóttir, safnvörður við Borgarsögusafn Reykjavíkur, og Margrét Þormar, arkitekt hjá skipulagsfulltrúa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert