Hellisheiði hefur verið opnuð

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Vegurinn um Hellisheiði hefur verið opnaður en honum var lokað tímabundið í nótt vegna mikillar þoku og mjög slæmra akstursskilyrða.

Lögreglan á Suðurlandi biður ökumenn að virða hraðatakmarkanir sem gilda á Hellisheiðinni, „athuga með að hafa nægjanlegt bil á milli bíla og gera nú, eins og ávallt, ráð fyrir hinu óvænta,“ eins og segir á Facebook-síðu lögreglunnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert