Var ekki beitt ofbeldi

mbl.is/Þórður

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur sleppt konu sem var handtekin léttklædd í annarlegu ástandi í gærkvöldi. Aðspurður segir aðstoðaryfirlögregluþjónn að ekki leiki grunur á að konan hafi verið beitt ofbeldi.

Hann segir að það tengist einvörðungu vímuefnaneyslu og hefur lögreglan lokið afskiptum sínum af málinu.

Lögreglan greindi frá því í tilkynningu, sem hún sendi á fjölmiðla í morgun, að konan hefði verið handtekin um níuleytið í gærkvöldi. Var hún í g-streng einum klæða. Lögreglan sagði ennfremur að þar sem hún var óviðræðuhæf vegna vímu þá hefði hún verið vistuð í fangageymslu þar til ástand hennar myndi lagast.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert