Fórnarlambið enn þungt haldið

Maðurinn liggur þungt haldinn á gjörgæslu.
Maðurinn liggur þungt haldinn á gjörgæslu. mbl.is/Lára Halla

Karlmaðurinn sem varð fyrir árás á Akranesi síðdegis á föstudaginn liggur enn þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans og er ástand hans óbreytt frá því að hann var fluttur þangað.

Karlmaður á fertugsaldri sem handtekinn var í tengslum við árásina var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 14. október á laugardaginn. Árásin átti sér stað í heimahúsi á Akranesi á föstudag.

Yfirheyrslur og skýrslutökur vegna málsins hafa staðið yfir síðustu daga.

Frétt mbl.is: Í gæsluvarðhaldi vegna árásar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert