Manndráp við Miklubraut

Lögregla rannsakar nú manndráp við Miklubraut samkvæmt heimildum mbl.is, en mikill viðbúnaður er á staðnum. Einn hefur verið handtekinn og er tæknideild lögreglu á vettvangi.

Lögregla hefur ekki staðfest að um manndráp sé að ræða en gaf þær upplýsingar fyrr í kvöld að til áfloga hefði komið í búsetukjarna við götuna. Þrjár sjúkrabifreiðar voru sendar á vettvang samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði.

Uppfært kl. 23.45:

Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn, hefur staðfest í samtali við mbl.is að einn hafi verið handtekinn grunaður um manndráp.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert