Fara fram á gæsluvarðhald

Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir mönnunum tveimur.
Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir mönnunum tveimur. Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir mönnunum tveimur sem handteknir voru í gær í tengslum við rán í Gullsmiðjunni í Hafnarfirði fyrir rúmri viku. Gangi það eftir munu þrír sæta gæsluvarðhaldi vegna málsins. 

Aðspurður segist Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, ekki geta gefið upplýsingar um hvort búið sé að finna þýfið. Rannsókn málsins er í fullum gangi. 

Hef­ur lög­regla farið í hús­leit á nokkr­um stöðum und­an­farna daga, þar á meðal eina í gær þar sem tví­menn­ing­arn­ir voru hand­tekn­ir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert