Viðvarandi halli í borginni

Meirihlutinn í borginni lagði fram frumvarp að fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir …
Meirihlutinn í borginni lagði fram frumvarp að fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir næsta ár á fundi í gær. Minnihlutinn segir rekstraraðhald skorta. mbl.is/Styrmir Kári

Viðvarandi halli aðalsjóðs Reykjavíkurborgar bendir til þess að skatt- og þjónustutekjur standi ekki undir rekstri málaflokka borgarinnar til lengri tíma.

Þetta kemur fram í greinargerð með frumvarpi til fjárhagsáætlunar, sem meirihlutinn kynnti á borgarstjórnarfundi í gær.

Í inngangi að greinargerðinni segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri að launa- og rekstrarkostnaður muni verða dreginn saman á næstu þremur árum. Í samtali við Morgunblaðið segir hann að uppsagnir muni heyra til undantekninga. Í umfjöllun um fjármál borgarinnar  í blaðinu í dag segir Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðisflokks, áætlun meirihlutans varasama og að staðan á rekstri borgarinnar sé skelfileg.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert