Milljón í Græna loftslagssjóðinn

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra.
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra. AFP

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra ávarpaði í dag ráðstefnu í Singapúr á vegum Hringborðs Norðurslóða en hann er staddur í landinu vegna opinberrar heimsóknar Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands. 

„Þar tilkynnti Gunnar Bragi m.a. um aukin framlög til Græna loftslagssjóðsins um 1 milljón bandaríkjadala sem mun dreifast á næstu fimm árin. Sjóðurinn mun fjármagna verkefni í þróunarríkjum sem miða að því að minnka losun gróðurhúsalofttegunda og takast á við afleiðingar loftslagsbreytinga,“ segir í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Framundan á dagskrá utanríkisráðherra er síðan aðildarríkjaþing loftslagssamnings SÞ í París, COP21, þar sem aukin fjárframlög til loftslagsmála munu gegna mikilvægu hlutverki til ná samkomulagi um nýjan loftslagssamning.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert