Málefni flóttafólks eru málefni hinsegin fólks

Ljósmynd/Jakob Fannar Sigurðsson

Málefni flóttafólks eru málefni hinsegin fólks. Þetta segir í yfirlýsingu Samtakanna ´78 vegna brottvísanna á hælisleitendum frá Albaníu og Makedóníu í nótt.

Í yfirlýsingunni fordæma samtökin harðlega það regluverk sem leyfir aðgerðir á við þær sem fram fóru í nótt og minna á að í hópi flóttafólks og hælisleitenda hérlendis er einnig hinsegin fólk sem hefur flúið ofsóknir vegna kynhneigðar eða kynvitundar sinnar.

„Við vitum ekki enn hvort einhver þeirra voru numin af landi brott í nótt en sem mannréttindasamtök og talsfólk minnihlutahópa teljum við afar brýnt að við verjum skjólstæðinga okkar og stöndum með þeim jaðarsettu minnihlutahópum sem þeir tilheyra. Aðgerðir næturinnar grafa verulega undan því trausti sem við, og annað baráttufólk, berum til íslenskra stjórnvalda í þessum efnum,“ segir í yfirlýsingunni.

Samtökin segjast telja samstöðu minnihlutahópa mikilvæga og að þau vilji leggja sig fram um að standa með þeim hópum sem standa hvað höllustum fæti í samfélaginu.

„Við styðjum rétt fólks sem býr við ógn og óöryggi í sínu heimalandi að leita sér betra lífs annarsstaðar. Sá réttur er hagsmunamál fyrir hinsegin fólk sem víða um heim býr við engin eða afar skert réttindi og viðvarandi ógn við líf sitt og heilsu.“

Skora samtökin á stjórnvöld að endurskoða regluverk um útlendinga og krefjast þess um leið að öllum brottvísunum flóttafólks og hælisleitenda til Grikklands, Ítalíu og annarra landa þar sem ljóst er að ekki er hægt að tryggja líf og heilsu fólks verði hætt.                              

„Sýnum mannúð og manngæsku. Það er nóg pláss á Íslandi.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert