Frumvarp um almennar íbúðir

Höfuðborgin.
Höfuðborgin. mbl.is/Ómar Óskarsson

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur lagt fram frumvarp til laga sem fjallar um uppbyggingu félagslegra leiguíbúða með stofnframlögum ríkis og sveitarfélaga. Markmiðið er að bæta húsnæðisöryggi efnaminni fjölskyldna með auknu framboði á hagkvæmu leiguhúsnæði þar sem húsnæðiskostnaður er í samræmi við greiðslugetu leigjenda.

Þetta kemur fram í frétt á vef Velferðarráðuneytisins.

„Miðað er við að ríki og sveitarfélög veiti stofnframlög til byggingar og kaupa á almennum íbúðum. Þannig verði stuðlað að framboði leiguhúsnæðis á viðráðanlegu verði fyrir þá sem á því þurfa að halda, s.s. námsmenn, ungt fólk, aldraðir, fatlað fólk og fólk sem annars væri í erfiðleikum með að sjá sér fyrir húsnæði vegna félagslegra aðstæðna eða fjárhagsvanda,“ segir í fréttinni.

Frumvarp um almennar íbúðir tekur að ýmsu leyti mið af tillögum verkefnisstjórnar um framtíðarskipan húsnæðismála sem skilaði ráðherra tillögum sínum í maí 2014. Einnig er með frumvarpinu fylgt eftir yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um aðgerðir til þess að greiða fyrir gerð kjarasamninga á almennum vinnumarkaði frá því í maí 2015. Í þessu felst m.a. að lagður er grunnur að nýju félagslegu leiguíbúðakerfi. Sett er það viðmið að leiga einstaklings með lágar tekjur nemi ekki hærra hlutfalli en 20–25% af tekjum. Í samræmi við yfirlýsinguna er gert ráð fyrir að byggja 2.300 íbúðir á næstu fjórum árum, þ.e. á árunum 2016–2019.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert