Fallið frá máli gegn Lárusi og stjórn Glitnis

Frá Héraðsdómi Reykjavíkur árið 2013 þar sem fyrirtaka í máli …
Frá Héraðsdómi Reykjavíkur árið 2013 þar sem fyrirtaka í máli þrotabús Glitnis gegn fyrrverandi stjórn bankans fór fram. mbl.is/Golli

Skaðabótarmál slitastjórnar Glitnis gegn Lárusi Welding og átta öðrum stjórnarmönnum Glitnis hefur verið fellt niður, en slitastjórnin taldi að ákvörðun stjórnarinnar að veita Baugi 15 milljarða lán hafi verið ábótavant og valdið 6,5 milljarða tjóni. Baugur nýtti lánið til að taka þátt í hlutafjárútboði FL Group, en Baugur var þá stærsti eigandi félagsins.

Samkvæmt upplýsingum frá lögmönnum bæði stefnanda og stefnda var gerð sátt sem felur í sér að allir málsaðilar muni greiða sinn málskostnað en að málið verði að öðru leyti fellt niður. Einn hinna stefndu sætti sig þó ekki við þá niðurstöðu og mun samkvæmt heimildum mbl.is láta á það reyna hver greiði málskostnaðinn.

Samkvæmt upplýsingum lögmanna Glitnis var ákveðið að láta málið falla niður eftir ákvörðun embættis sérstaks saksóknara um að falla frá ákæru í sama máli. Hafði slitastjórnin sent málið áfram til embættisins. Lánið sem um ræðir var veitt um áramótin 2007-2008 og var 15 milljarða víkjandi lán

Slita­stjórn Glitn­ir höfðaði málið gegn Lár­usi Weld­ing, fyrr­ver­andi for­stjóra Glitn­is, Jóni Ásgeiri Jó­hann­es­syni, fyrr­ver­andi for­stjóra Baugs og fyrr­ver­andi stjórn Glitn­is, en í henni sátu Þor­steinn M. Jóns­son, þáverandi eig­andi Víf­il­fells, Jón Sig­urðsson, sem var for­stjóri FL Group, Skarp­héðinn Berg Stein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­formaður FL Group, Pét­ur Guðmund­ar­son, lögmaður hjá Logos, Björn Ingi Sveins­son, sem var for­stjóri Sax­bygg, Hauk­ur Guðjóns­son og Katrín Pét­urs­dótt­ir, for­stjóri Lýs­is.

Frétt mbl.is: Málið komið í djúpu kistuna

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert