Dómaramál klætt í annan búning

Símon Sigvaldason tók sæti Arngríms Ísberg í málinu. Hæstiréttur ætlar …
Símon Sigvaldason tók sæti Arngríms Ísberg í málinu. Hæstiréttur ætlar ekki að aðhafast varðandi þá ákvörðun.

Hæstiréttur hefur vísað frá kæru lögmanns í Aurum-holding-málinu sem vildi að ákvörðun dómstjóra um að taka Arngrím Ísberg héraðsdómara af málinu og setja héraðsdómarann Símon Sigvaldason í hans stað yrði dæmd ógild. Sagði Hæstiréttur að í kærunni hafi verið reynt að klæða ágreiningsefnið í annan búning sem átti sér enga stoð og málinu því vísað frá.

Að öllu óbreyttu mun Símon því áfram vera meðdómari í málinu, en miðað við fyrri yfirlýsingar annarra verjanda í málinu er líklegt að kærð verði sú ákvörðun að Símon hafi verið skipaður.

Endurtaka þarf málið

Í málinu eru ákærðir þeir Lár­us Weld­ing, fyrr­ver­andi banka­stjóri Glitn­is, Jón Ásgeir Jó­hann­es­son, einn aðal­eig­andi bank­ans, Magnús Arn­ar Arn­gríms­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja­sviðs, og Bjarni Jó­hann­es­son, fyrr­ver­andi viðskipta­stjóri. Þeim er gefið að sök umboðssvik eða hlut­deilt í umboðssvik­um vegna sex millj­arða króna lán­veit­ing­ar Glitn­is banka til fé­lags­ins FS38 í júlí 2008.

Í júní í fyrra, eft­ir aðalmeðferð sem teygðist yfir nokkra mánuði, voru ákærðu all­ir sýknaðir. Dóm­ar­inn Arn­grím­ur skilaði þó séráliti þar sem hann vildi aðeins sýkna Bjarna, en sak­fella Lár­us, Magnús og Jón Ásgeir.

Mánuði síðar fór sak­sókn­ari fram á ómerk­ingu dóms­ins vegna ætt­artengsla sér­fróðs meðdóm­ara við Ólaf Ólafs­son, sem hafði áður verið dæmd­ur af embætti sér­staks sak­sókn­ara. Féllst Hæstirétt­ur á það og þarf því að end­ur­taka málið í héraði.

Guðjón dæmdur hlutdrægur

Þar með var deil­um um dóm­ara þó ekki lokið, en sak­sókn­ari sagði Guðjón Marteins­son, dóms­formann máls­ins, ekki vera óhlut­dræg­an í mál­inu. Var meðal ann­ars vísað í viðtal við Guðjón eft­ir dóm Hæsta­rétt­ar og aðsenda grein í Frétta­blaðið sem þó var aldrei birt. Að lok­um komst Hæstirétt­ur að þeirri niður­stöðu að Guðjóni bæri að víkja í mál­inu og var Barbara Björns­dótt­ir skipuð dóms­formaður. Þá var Arn­grím­ur Ísberg tek­inn af mál­inu og Sím­on Sig­valda­son sett­ur í staðinn. Skipaði Barbara svo Hrefnu Sig­ríði Briem, for­stöðumann grunn­náms HR í viðskipta­fræði, sem sér­fróðan meðdóm­ara.

Barbara hafnaði fyrir níu dögum kröfu verjanda Bjarna um að Arngrímur kæmi aftur í dóminn og kærði verjandinn þá niðurstöðu til Hæstarétts. Verjandi Jóns Ásgeirs sagðist við sama tækifæri munu kæra setu Símonar ef Arngrímur yrði ekki tekinn inn aftur.

Engin lagaheimild fyrir kærunni

Í dómi Hæstaréttar í dag kemur fram að ekki standi ágreiningur um hæfi Símonar til að sitja í dómnum, heldur hvort dómstjóri hafi að lögum mátt taka ákvörðun um að úthluta málinu til annars dómara í hans stað. Segir Hæstiréttur að það efni geti ekki sætt kæru til réttarins samkvæmt neinni lagaheimild og „verður ekki fram hjá þeirri staðreynd komist með því að leitast við að klæða það ágreiningsefni í annan búning sem á sér enga stoð. Máli þessu verður því vísað frá Hæstarétti.

Þá hefur einnig verið deilt um sérfróðan meðdómara í málinu, en verjendur telja hana ekki hafa þá sérþekkingu sem þurfi í mál sem þetta. Dómari hafnaði því aftur á móti og taldi ekki þurfa að gera breytingar á skipun dómsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert