Hús rýmd á Patreksfirði

Frá Patreksfirði.
Frá Patreksfirði.

Hættustigi hefur verið lýst yfir vegna snjóflóðahættu á Patreksfirði. Þetta kemur fram á Facebook-síðu almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra og á vefsíðu Veðurstofu Íslands. Áður hafði verið lýst yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu á sunnanverðum Vestfjörðum.

Fram kemur í tilkynningu frá Veðurstofunni að ákveðið hafi verið að rýma nokkur hús á rýmingarreit 4 á Patreksfirði. Austan bylur aé á svæðinu með ofankomu og skafrenningi. Spáð sé áframhaldandi stormi og að það bæti í snjókomu í kvöld. Staðan verði endurmetin á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert