Agent Fresco og Björk með flestar tilnefningar

Tilkynnt var um tilnefningarnar í Gamla bíói í dag.
Tilkynnt var um tilnefningarnar í Gamla bíói í dag. mbl.is/ Eggert

Íslensku tónlistarverðlaunin verða afhent þann 4. mars næstkomandi en nú fyrir skömmu var hulunni svipt af tilnefningunum til verðlaunanna. Fjölmargir tónlistarmenn eru tilnefndir í 22 flokkum sem falla undir fjögur svið: popp og rokk, jass og blús, sígilda og samtímatónlist og opinn flokk.

Flestar tilnefningar þetta árið falla í skaut Agent Fresco sem er með sex slíkar, m.a. fyrir besta söngvarann, plötu ársins og lag ársins.

BjörkGuðmundsdóttir hlaut fimm tilnefningar alls, en m.a. er Vulnicura tilnefnd sem besta poppplata ársins og Björk sem söngkona og upptökustjóri ársins.

Of Monsters and Men eru ekki langt á eftir Björk með fjórar tilnefningar en þeir sem hljóta þrjár tilnefningar eru Teitur Magnússon, Agent Fresco, Einar Scheving og Sunna Gunnlaugs.

Fimm eru tilnefndir til titilsins „Bjartasta vonin“ á vegum Rásar 2. Það eru Axel Flóvent, Fufanu, Glowie, Pink Street Boys og Sturla Atlas.

Allar tilnefningarnar má sjá hér að neðan.

Frá Gamla bíói í dag.
Frá Gamla bíói í dag. mbl.is/ Eggert

POPP OG ROKK

PLATA ÁRSINS - POPP

Björk - Vulnicura

Dj flugvél og geimskip - Nótt á hafsbotni

Helgi Björnsson - Veröldin er ný

Of Monsters and Men - Beneath the skin

Teitur Magnússon - Tuttugu og sjö

PLATA ÁRSINS – ROKK

Agent Fresco - Destrier

Axel Flóvent - Forest fires

Fufanu - Few more days to go

Meistarar dauðans - Meistarar dauðans

Vio - Drive in

LAG ÁRSINS - POPP

Björk - Stonemilker

Glowie - No more

Júníus Meyvant - Hailslide:

Of Monsters and Men - Crystals

Úlfur Úlfur - Brennum allt

LAG ÁRSINS - ROKK

Agent Fresco - See hell

Axel Flóvent - Forest fires

Fufanu - Your collection

Jónas Sigurðsson og Ritvélar framtíðarinnar - Af ávöxtunum

Kaleo - Way we go down

SÖNGKONA ÁRSINS

Björk Guðmundsdóttir

Glowie (Sara Pétursdóttir)

Nanna Bryndís

Salka Sól

Sigríður Thorlacius

SÖNGVARI ÁRSINS

Arnór Dan

Friðrik Dór

Helgi Björnsson

Júníus Meyvant

Teitur Magnússon

FLYTJANDI ÁRSINS

Agent Fresco

dj flugvél og geimskip

Jónas Sigurðsson og Ritvélar framtíðarinnar

Of Monsters and Men

Úlfur Úlfur

TEXTAHÖFUNDUR ÁRSINS

Björk

Bragi Valdimar Skúlason

Jónas Sigurðsson

Teitur Magnússon

Úlfur Úlfur

TÓNLISTARVIÐBURÐUR ÁRSINS

Iceland Airwaves

John Grant og Sinfó

Jólatónleikar Baggalúts

Mr. Silla á Iceland Airwaves

Útgáfutónleikar Agent Fresco

JASS- OG BLÚS

PLATA ÁRSINS

Annes - Annes

Einar Scheving - Intervals

K-tríó - Vindstig

Stórsveit Reykjavíkur/Jóel Pálsson - Innri

Sunna Gunnlaugs trio - Cielito Lindo

TÓNLISTARVIÐBURÐUR ÁRSINS

Berlin X Reykjavík 2015

Bræðralag - Ómar Guðjónsson & Tómas R. Einarsson

Jazzhátíð Reykjavíkur

Reykjavík Guitarama 2015 - Gítarhátíð Björns Thoroddsen

 

TÓNVERK ÁRSINS

Einar Scheving - Intervals, plötunni Intervals  

Guðmundur Pétursson - Henrik, af plötunni Annes

Jóel Pálsson - Tjörn, af plötunni Innri

Kristján Tryggvi Martinsson - Ofsaveður, af plötunni Vindstig

Sunna Gunnlaugs - Dry cycle, af plötunni Cielito Lindo

FLYTJANDI ÁRSINS

Einar Scheving

Kristján Martinsson

Sigurður Flosason

Sunna Gunnlaugs

Þorsteinn Magnússon

SÍGILD OG SAMTÍMATÓNLIST

PLATA ÁRSINS

Anna Þorvaldsdóttir - In the Light of Air

Einar Jóhannesson - Áskell Másson

Melkorka Ólafsdóttir - Telemann-fantasíur

Melodia, Kammerkór Áskirkju - Melodia

Nordic Affect - Clockworking

TÓNVERK ÁRSINS

Daníel Bjarnason - Collider

Finnur Karlsson - Fold

Hugi Guðmundsson - Absentia

Karólína Eiríksdóttir - MagnusMaria

Þuríður Jónsdóttir - Solid Hologram

SÖNGKONA ÁRSINS

Sigríður Ósk Kristjánsdóttir

Valgerður Guðnadóttir

Þóra Einarsóttir

SÖNGVARI ÁRSINS

Benedikt Kristjánsson

Bjarni Thor Kristinsson

Oddur Arnþór Jónsson

FLYTJANDI ÁRSINS

Daníel Bjarnason, Sinfóníuhljómsveit Íslands og Íslenska Óperan fyrir Peter Grimes

Davíð Þór Jónsson fyrir flutning á Reykjavík Midsummer Music

Mótettukór Hallgrímskirkju og Hörður Áskelsson fyrir Salómon

Nicola Lolli og Domenico Codispoti fyrir tónleika sína á Listahátíð í Reykjavík

Nordic Affect fyrir tónleikahald á árinu

TÓNLISTARVIÐBURÐUR ÁRSINS

Cycle Music and Art Festival

MagnusMaria: Ópera um rétt kyn

Óratorían Salómon

Peter Grimes á Listahátíð

Philharmonia Orchestra og Daniil Trifonov

OPINN FLOKKUR

PLATA ÁRSINS

Memfismafían og Bragi Valdimar Skúlason - Karnevalía

Mr. Silla - Mr. Silla

President Bongo and the Emotional Carpenters - Serengeti

Red Barnett - Shine

Sinfóníuhljómsveit Íslands - Jólalög

UPPTÖKUSTJÓRI ÁRSINS

Björk Guðmundsdóttir, Frank Arthur Blöndahl Cassata og Chris Elms fyrir Vulnicura með Björk

Georg Magnússon og Valgeir Sigurðsson fyrir Clockworking með Nordic Affect

Guðmundur Kristinn Jónsson fyrir Karnevalíu með Memfismafíunni og Braga Valdimar Skúlasyni

Ólafur Arnalds fyrir Broadchurch með Ólafi Arnalds

Styrmir Haukssson og Agent Fresco fyrir Destrier með Agent Fresco

BJARTASTA VONIN, tilnefningar frá Rás 2.

Axel Flóvent

Fufanu

Glowie

Pink Street Boys

Sturla Atlas

Nánari upplýsingar og umsagnir má finna á www.iston.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert