Fyrsti metanólbíllinn í Evrópu

Verksmiðja CRI á Suðurnesjum.
Verksmiðja CRI á Suðurnesjum. Mynd/CRI

Fyrsti bíllinn sem fluttur hefur verið til Evrópu og gengur fyrir hreinu metanóli, verður frumsýndur í dag á alþjóðlegri ráðstefnu íslenska fyrirtækisins Carbon Recycling International (CRI).

Ráðstefnan fer fram á Grand Hótel en fjallað verður um metanól sem eldsneyti fyrir samgöngur á sjó og landi.

Metanólbíllinn er framleiddur af kínverskum samstarfsaðila CRI, Geely Auto, og fluttur inn af Brimborg. Nokkrir bílar verða prófaðir hér á landi á næstu mánuðum en þeir ganga fyrir metanóli sem CRI framleiðir í verksmiðju sinni í Svartsengi á Suðurnesjum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert