Dekkjakurlið burt úr Kópavogi

Breiðablik fagnar í góðum leik.
Breiðablik fagnar í góðum leik. mbl.is/Eva Björk

Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti einróma á fundi sínum síðdegis að lokið verði við að skipta út gúmmíkurli úr dekkjum á sparkvöllum við grunnskóla bæjarins á árinu.

Hagur barna er hafður að leiðarljósi í ákvörðun bæjarstjórnar að því er fram kemur í tillögunni sem lögð var fram af meirihluta Bjartrar framtíðar og Sjálfstæðisflokks.

Ákvörðun bæjarstjórnar þýðir að endurnýjun sparkvallanna verður flýtt miðað við það sem áætlað hafði verið. Þegar hefur dekkjakurl verið fjarlægt af sparkvelli við Lindaskóla og verður gúmmíkurli úr dekkjum nú skipt út á völlum við hina átta skóla bæjarins fyrir árslok 2016.

Þá var greint frá því á mbl.is í gær að bæj­ar­yf­ir­völd á Seltjarn­ar­nesi ætli að fjar­lægja allt gúmmík­url úr dekkj­um við íþrótta­svæði Seltirn­inga og verður völl­ur­inn all­ur end­ur­nýjaður við sama tæki­færi. 

Með þessu móti vill Seltjarnarnesbær bregðast við þeirri umræðu sem hef­ur verið uppi  um mögu­lega skaðsemi kurls­ins og skapa ör­uggt um­hverfi fyr­ir íþróttaiðkend­ur á Nesinu.

Frétt mbl.is:

Börn eins og námugraftrarmenn

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert