Telja viðbótarákvæði stjórnarskrárnefndar til bóta

Brynhildur Pétursdóttir þingflokksformaður Bjartrar framtíðar segir viðbótarákvæðin vera skref í …
Brynhildur Pétursdóttir þingflokksformaður Bjartrar framtíðar segir viðbótarákvæðin vera skref í rétta átt. Ljósmynd/Hordur Sveinsson

Viðbótarákvæðin sem stjórnarskrárnefndar hefur lagt til að bætt verði við stjórnarskránna eru til bóta að mati þingmanna Bjartar Framtíðar.

„Þetta er málamiðlun sem að við í þingflokkinum erum þokkalega ánægð með,“ segir  Brynhildur Pétursdóttir þingflokksformaður Bjartrar framtíðar.

Pírat­ar hafa hafnað þing­legri meðferð þriggja til­lagna stjórn­ar­skrár­nefnd­ar um viðbót­ar­á­kvæði í stjórn­ar­skrá í ra­f­ræn­um kosn­ing­um og í gær sagði Árni Páll Árna­son, formaður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, að um­tals­verðar efa­semd­ir hafi komið fram um ákvæðin á flokks­stjórn­ar­fundi flokks­ins. Stemm­ing­in hafi verið „treg“ gagn­vart til­lög­un­um.

Brynhildur segir skiljanlegt að margir séu heitir í stjórnarskrárumræðunni. „Þarna eru margir sem koma að borðinu og það skiptir máli að hafa það í huga, en við í Bjartri framtíð teljum að þessar þrjár tillögur séu til bóta.“

Ekki lengra komist að sinni

Vissulega hefðu þau viljað sjá róttækari tillögur. „En þetta er gott skref í rétta átt, sérstaklega ákvæðið um þjóðaratkvæðagreiðslu, sem er gríðarlega mikilvægt.“ Raunsætt mat sé að ekki hafi verið lengra komist að sinni. „Maður þvingar ekki svona í gegn,“  segir hún.

Þó breytingar verði gerðar á stjórnarskránni nú þýði það ekki að þar eigi að láta staðar numið. „Það er ýmislegt eins og kaflinn um forsetann, sem við verðum að halda áfram með.“ Hún nefnir sem dæmi þá stöðu sem upp kann að koma í tengslum við næstu forsetakosningar. „Þar erum við til að mynda að horfa upp á það að forseti þarf ekki að hafa meirihluta atkvæða á bak við sig.“

Spurð um viðbrögð Pírata og Samfylkingar, segir Brynhildur: „Svo ég tali fyrir mig, að þá myndi mér finnast það mjög miður ef málið fer ekki í gegn og ég veit ekki alveg hvað væri fengið með því.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert