Bjarni og Ólafur komnir heim

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands og Bjarni Benediktsson, fjármála- og …
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, lenti í Keflavík á sjöunda tímanum á morgun. Hann hefur dvalið í Bandaríkjunum síðustu daga ásamt fjölskyldu sinni. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, er einnig kominn til Íslands. 

Mun Bjarni hitta Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra fyrir hádegi í dag en það verður hans fyrsta verk eftir heimkomuna, líkt og kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

Þá mun hann einnig funda með þingflokki Sjálfstæðisflokksins. Ræddi hann við sitt fólk í gegnum fjarfundabúnað í gær. 

Ekki liggur fyrir hvernig dagskrá Bjarna verður háttað fyrir hádegi. 

Bjarni sagðist í viðtali við Ríkisútvarpið í gærkvöldi ekki hafa rætt við Sigmund Davíð í gær. Þá hafi hann ekki talað við Ólaf Ragnar í nokkurn tíma. 

Forsteinn var stadd­ur er­lend­is í einka­er­ind­um en flýtti heim­ferð sinni að sögn Örn­ólfs Thors­son­ar for­seta­rit­ara. Hann vildi ekki tjá sig um ástæðu þess að for­set­inn ákvað að flýta ferð sinni heim.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert