Kasta kjöti, fisk og eggjum

Um 3.000 mótmælendur eru nú á Austurvelli og kasta kjöti, fisk og eggjum að þinghúsinu. Trommusláttur ómar um völlinn en rigningarlegt er í miðbænum.

Um klukkan 19 er von á að tilkynnt verði um niðurstöður viðræðna Sjálfstæðismanna og Framsóknarmanna um ríkisstjórnarsamstarfið. Samkvæmt heimildum mbl.is verður efnt til blaðamannafundar í þinghúsinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert