Talsverðar umferðartafir urðu á þjóðveginum fyrir vestan Selfoss í kjölfar umferðarslyss á gatnamótum Suðurlandsvegar og Biskupstungnabraut þar sem jeppabifreið og fólksbifreið lentu saman. Slysið átti sér stað skömmu fyrir klukkan sjö í kvöld.
Tveir voru fluttir á sjúkrahús til aðhlynningar en meðsl þeirra eru talin minniháttar samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. Fjarlægja þurfti aðra bifreiðina með dráttarbíl.