„Þeir munu varast vinstri slysin“

Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Stuðningur við ríkisstjórnina og báða ríkisstjórnarflokkana eykst samkvæmt könnun Gallup sem birt var í gærkvöldi. Það þarf ekki að koma á óvart í ljósi þess efnahagsárangurs sem náðst hefur á yfirstandandi kjörtímabili,“ sagði Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, á Alþingi í dag undir dagskrárliðnum umræður um störf þingsins.

Karl sagði fjármálastefnu og fjármálaáætlun stjórnvalda sem lægi fyrir í þinginu staðfesti þau risaskref sem tekin hefðu verið og það góðæri sem fyrir hendi væri. „Ef menn vilja ekki hlusta á stjórnvöld og telja allt ómögulegt sem frá þeim kemur skulum við vitna í nýja hagspá ASÍ. Alþýðusambandið spáir samfelldum hagvexti hérlendis í átta ár, hann verði 4,9% á þessu ári sem er einn mesti hagvöxtur í vestrænu ríki og að jafnaði 3,8% á næsta og þarnæsta ári.“

Þetta héldist í hendur við lítið atvinnuleysi og verðbólgu sem væri undir 2%. „Hagur heimilanna hefur batnað og ASÍ telur að einkaneysla muni vaxa um 6% á þessu ári sem er það mesta frá 2007. Því má bæta við að hvergi í Evrópu er jafn mikill tekjujöfnuður og á Íslandi samkvæmt nýjum tölum frá Eurostat, Hagstofu Evrópusambandsins.“

Rekstur borgarinnar er í fullkomnum ólestri“

Þingmaðurinn sagði ekki þörf á að líta lengra en til Reykjavíkur til þess að sjá hvað gerðist ef stjórnarandstöðuflokkarnir kæmust til valda á landsvísu. „Rekstur borgarinnar er í fullkomnum ólestri. Þannig var rekstrarniðurstaða Reykjavíkurborgar á síðasta ári 12 milljörðum króna lakari en áætlanir gerðu ráð fyrir. Niðurstaðan er neikvæð um tæpa 5 milljarða en gert hafði verið ráð fyrir um 7,3 milljarða kr. afgangi.“

Karl sagði þetta einstakt afrek stjórnarandstöðuflokkanna. Slakur rekstur væri síðan afsakaður með því að borgin þyrfti að standa við skuldbindingar. „Almenningur þarf líka að standa við sínar skuldbindingar, hvort sem það eru lán eða annað. Í næstu alþingiskosningum verður kosið á milli flokka sem sýna ráðdeild og ábyrgð í fjármálum og þeirra sem kunna ekki að fara með fjármuni. Kjósendur eru sem betur fer skynsamir. Þeir munu varast vinstri slysin.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert