Haraldur vill taka við af Einari

Haraldur Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Haraldur Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Haraldur Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vill skipa fyrsta sæti lista flokksins í norðvesturkjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar í haust. Einar Kr. Guðfinnsson, forseti Alþingis, skipaði fyrsta sæti listans við síðustu kosningar en hann gefur ekki kost ár sér til endurkjörs. 

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, aðstoðarmaður innanríkisráðherra, lýsti yfir áhuga á því að sækjast eftir öðru sæti á lista flokksins. 

Kjördæmisþing Sjálfstæðisflokksins í norðvesturkjördæmi sem var haldið í Borgarnesi laugardaginn 30. apríl 2016. Þar var samþykkt að við uppstillingu á framboðslista flokksins við komandi kosningar í haust verði haldið prófkjör. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert