Vegna yfirvinnubanns flugumferðarstjóra var ekki hægt að kalla inn aukamannskap í morgun til þess að fullmanna vaktir í flugstjórnarmiðstöð Reykjavíkur samkvæmt upplýsingum frá Isavia. Fyrir vikið varð nokkur töf í morgun á brottförum flugvéla frá Keflavíkurflugvelli.
Samkvæmt upplýsingum sem mbl.is fékk frá Isavia þurfti af þessum sökum að hafa fimm mínútur á milli brottfara frá Keflavíkurflugvelli á tímabilinu klukkan 07:09 – 09:04 og fjórar mínútur á tímabilinu klukkan 09:04 – 09:43 til þess að viðhalda öryggisstigi.