Þykknar upp í dag

Spáð er vaxandi suðaustanátt í dag.
Spáð er vaxandi suðaustanátt í dag.

Spáð er vaxandi suðaustanátt í dag og þykknar upp. Vindur verður 8 til 15 metrar á sekúndu og fer að rigna vestan til undir hádegi. Hægara veður verður fyrir austan og léttir víða til. Síðan hvessir talsvert og bætir í rigningu norðvestan til í kvöld.

Í fyrramálið spáir Veðurstofan dálítilli vætu með köflum, hvassast á annesjum nyrst en dregur síðan úr vindi og rofar til. Hiti verður á bilinu 10 til 19 stig að deginum, hlýjast norðaustanlands.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert