Hentu blysum á völlinn

Á leik Íslands og Ungverjalands.
Á leik Íslands og Ungverjalands. AFP
Ungverskir stuðningsmenn létu ófriðlega undir lok leiks Íslands og Ungverjalands og köstuðu logandi blysum á völlinn í átt að íslensku strákunum.

Stuðningsmennirnir voru einnig með læti fyrir leikinn þegar þeir slógust við lögreglu og reyndu að klifra yfir öryggisgirðingu á vellinum.

Frétt mbl.is: Slagsmál á leik Íslands og Ungverjalands
AFP
Óeirðalög­regl­an stóð vörð fyr­ir fram­an ung­versku áhorf­end­urna meðan á leiknum stóð og starfsmenn vallarins voru í þéttri röð fyrir framan. Ekkert slíkt var fyrir framan íslensku stuðningsmennina.

AFP

Ungverjar og Íslendingar skildu jafnir eftir leikinn í Marseille í dag en Ung­verj­ar jöfnuðu met­in á 88. mín­útu.

Ung­verja­land er þá með fjög­ur stig og Ísland tvö eft­ir tvær um­ferðir. Portúgal er með eitt stig og Aust­ur­ríki ekk­ert.

Vallarstarfsmaður sækir blys sem ungverskir stuðningsmenn hentu á völlinn.
Vallarstarfsmaður sækir blys sem ungverskir stuðningsmenn hentu á völlinn. AFP
AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert