Stemningin að ná hámarki í Nice

Frábær stemning er á meðal íslenskra stuðningsmanna í frönsku borginni Nice, nú þegar styttist í leikinn gegn Englandi í sextán liða úrslitum EM í knattspyrnu.

Fjölmargir stuðningsmenn landsliðsins, bæði fólk sem er velviljað Íslendingum og Íslendingar sjálfir, eru saman komnir í miðbæ borgarinnar og skemmta sér vel, eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði.

Gert er ráð fyrir að um þrjú þúsund Íslendingar verði á leiknum í kvöld.

Leikurinn hefst klukkan sjö í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert