Von á fleiri treyjum á föstudaginn

Verið að merkja landsliðsbúninga hjá Errea.
Verið að merkja landsliðsbúninga hjá Errea. Þórður Arnar Þórðarson

Íslenska landsliðstreyjan er uppseld hjá flestum endursöluaðilum. Ný sending af treyjunum kemur til Íslands á föstudaginn og önnur í vikunni þar á eftir. Unnið verður að því að koma treyjunum hratt og vel í verslanir.

„Eftir glæsilegan sigur Íslendinga á Englendingum hefur fjöldi fyrirspurna borist til okkar, en vegna gríðarlegs álags á símkerfi okkar höfum við því miður ekki náð að svara öllum símtölum. Unnið hefur verið markvisst að því að tryggja fleiri treyjur til landsins,“ er haft eftir Þorvaldi Ólafssyni, framkvæmdastjóra Errea á Íslandi, í tilkynningu. 

Samkvæmt upplýsingum frá Errea koma treyjurnar í öllum fullorðinsstærðunum, eða S, M, L og XL. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert