WOW air hefur ákveðið að bæta við flugi til og frá París nk. mánudag en sala hefst eftir hádegi á heimasíðu félagsins. WOW bætti í gærkvöldi við vél sem flýgur út á sunnudag og eru enn nokkur sæti laus út til Parísar.
Mikil spenna ríkir fyrir viðureign Íslands og Frakklands sem fer fram á þjóðarleikvangi Frakka nk. sunnudagskvöld. Stuðningsmenn Íslands vilja fjölmenna en það getur reynst þrautin þyngri að fá miða á viðráðanlegu verði til Frakklands.
WOW air flýgur daglega til höfuðborgar Frakklands. Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi WOW, segir í samtali við mbl.is að ákveðið hafi verið að bæta við heimflugi nk. mánudag þar sem engin laus sæti voru í boði til Íslands með félaginu þann dag.
Svanhvít bendir á að enn séu til miðar út á leikdegi, þ.e. á sunnudag.