Fimm fá 56 milljónir

Fimm deila með sér öðrum vinningi í Eurojackpot þessa vikuna.
Fimm deila með sér öðrum vinningi í Eurojackpot þessa vikuna.

Fyrsti vinningur í Eurojackpot gekk ekki út í kvöld en fimm deila með sér öðrum vinningi og fær hver tæplega 56 milljónir króna.

Vinningsmiðarnir voru seldir í Ungverjalandi, Tékklandi, Þýskalandi, Finnlandi og á Ítalíu.

Tveir voru með fjórar tölur réttar í jókernum og fá 100.000 krónur hvor. Annar var með miða í áskrift en hinn var seldur í Bónus á Akureyri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert