Hótaði að beita skotvopni

Map.is kort
Map.is kort Map.is

Sérsveit ríkislögreglustjóra aðstoðaði vopnaða lögreglumenn á Vestfjörðum í nótt vegna manns sem hótaði að beita skotvopni um borð í erlendri skútu í kjölfar ágreinings. Einn maður var handtekinn. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum. 

Fram kemur að lögreglunni hafi borist tilkynning klukkan 02:23 í nótt um að ágreiningur hefði orðið meðal áhafnarmanna um borð í erlendri skútu, sem lá við bryggju á Suðueyri. Fimm erlendir menn voru um borð. Einn þeirra hafði hótað að beita skotvopni.

Að sögn lögreglu var ljóst að skotvopn, fleiri en eitt, hafi verið um borð í skútunni á þessum tíma. Þrír mannanna fóru frá borði en tveir urðu eftir. Annar þeirra hótaði að beita skotvopni.

Alls fóru fimm lögreglumenn strax á vettvang en þeir voru búnir viðeigandi varnarbúnaði og vopnum. Á sama tíma var kallað eftir aðstoð sérsveitar.

„Lögreglumenn á vettvangi tryggðu aðstæður meðan beðið var sérsveitar. Þyrla LHG flutti sérsveitarmenn vestur og í framhaldi komu þeirra, eða kl.06:40, var farið um borð í skútuna og sakborningur handtekinn. Hann var færður í fangageymslu á Ísafirði. Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni á Vestfjörðum,“ segir í tilkynningunni.

Ennfremur segir, að skútan hafi komið til hafnar á Suðureyri um kl. 21 í gærkvöldi.

Horft yfir Suðureyri við Súgandafjörð
Horft yfir Suðureyri við Súgandafjörð Morgunblaðið/Sigurður Bogi
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert