Slökkviliðsmenn Brunavarna Árnessýslu í Hveragerði voru í gær kallaðir út vegna elds sem logaði í gasgrilli við heimahús í bænum. Húsráðendur höfðu kveikt upp í grillinu en einhver gömul óhreinindi hafa líklega verið á grillinu því að eldurinn varð mun meiri en til stóð.
Húsráðendur voru búnir að slökkva þegar slökkviliðsmenn komu á staðinn og var tjón óverulegt, að því er segir í færslu sem Brunavarnir Árnessýslu hafa birt á Facebook.
„Af þessu má draga þann lærdóm að gæta þarf þess að þrífa grillin reglulega því í þeim safnast fita sem brennur auðveldlega við réttar aðstæður. Jafnframt er gott er að hafa í huga að fyrsta aðgerð við að slökkva slíka elda er að skrúfa fyrir gasið,“ segir enn fremur.