Fjörutíu rósum varpað í sjóinn

40 rósum var varpað í sjóinn í Straumfirði á Mýrum …
40 rósum var varpað í sjóinn í Straumfirði á Mýrum en þessa dagana er þess minnst að 80 ár eru liðin frá því að franska rannsóknarskipið Pourquoi-Pas? fórst þar úti fyrir. mbl.is/Rax

40 rósum var varpað í sjóinn í Straumfirði á Mýrum við athöfn í gær, en þessa dagana er þess minnst að 80 ár eru liðin frá því að franska rannsóknarskipið Pourquoi-Pas? fórst þar úti fyrir. Rósirnar eru til að minnast þeirra 40 skipverja sem fórust með skipinu, en þar á meðal var leiðangursstjórinn, Jean-Baptiste Charcot.

Einn maður komst lífs af.

Við athöfnina voru afkomendur Charcots, þar á meðal barnabarn hans, Ann-Marie Vallin-Charcot, skipverjar af nýja franska rannsóknarskipinu Pourquoi Pas? og félagar í Björgunarfélagi Akraness.

Frétt mbl.is: Síðasta myndin af Pourquoi Pas?

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert