Fengið ábendingar vegna vopnaðs ráns

Lögreglan sendir eftirfarandi myndir frá sér fyrr í dag. Sjá …
Lögreglan sendir eftirfarandi myndir frá sér fyrr í dag. Sjá má manninn sem rændi verslunina. Ljósmynd/Lögreglan

Lögreglunni á Norðurlandi eystra hafa borist nokkrar ábendingar um manninn sem rændi verslun Samkaup/Strax á Akureyri í gærmorgun. Í morgun birti lögreglan myndir af manninum úr öryggismyndavél.

Lögreglan vill ekki segja til um hvort búið sé að bera kennsl á manninn, en unnið sé út frá þeim ábendingum sem hafi borist.

Rannsóknarlögreglumenn og fulltrúar á bakvakt voru kallaðir til vegna málsins og að sögn lögreglunnar er reynt að vinna málið eins hratt og hægt er.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert