Leyfum rannsakendum að klára málið

Byggingakrani féll við Bæjarins bestu í miðborginni í gær.
Byggingakrani féll við Bæjarins bestu í miðborginni í gær. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

„Það er ljóst að eitthvað fór úrskeiðis, slysin verða þannig. Ég treysti mér ekki til að svara því hvað gerðist nákvæmlega. Eitthvað klikkaði, hvort sem það er öryggisbúnaður á krananum eða hvað,“ segir Eggert Jóns­son, fram­kvæmda­stjóri verk­taka­fyr­ir­tæk­is­ins Þarfaþings, í samtali við mbl.is.

Krani, sem fyr­ir­tækið er með á leigu, féll til jarðar í Hafn­ar­stræti skömmu fyr­ir há­degi í gær. Mikil mildi þykir að engin hafi slasast. Kranastjórinn er van­ur maður með skil­yrt rétt­indi. Þá var kraninn út­tek­inn af Vinnu­eft­ir­lit­inu við upp­setn­ing­una.

Forstjóri Vinnueftirlitins sagði í samtali við mbl.is í gær að það hefði greinilega verið búið að eiga við öryggisbúnað kranans. „Forstjóri Vinnueftirlitsins er greinilega búinn að finna niðurstöðu og var búinn að því nokkrum klukkustundum eftir að kraninn féll, sem mér finnst svolítið sérstakt. Eigum við ekki að lofa rannsakendum að klára málið? Eitthvað þætti mér skrýtið ef lögreglustjóri tilkynnti sekt sakbornings um leið og hann væri handtekinn,“ bætir Eggert við.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Vinnueftirlitið er með málið til rannsóknar. Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlitsins, segir ljóst að þetta eigi ekki að geta gerst. „Búnaður kranans er þannig að þetta á ekki að geta gerst. Sá búnaður er því annað hvort bilaður eða það hefur verið átt við hann og grunur leikur á að það hafi verið gert. Okkar niðurstaða er sú að kraninn var með allt of þunga byrgði og þetta var algjörlega óforsvaranleg framkvæmd.“

Jóhann Karl Þórisson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, segir að verið sé að yfirheyra þá sem bera ábyrgð. Kranastjórarnir séu tveir og ræða þurfi við þá báða en búist er við því að skýrslutöku ljúki í næstu viku. Þá fer málið til ákærusviðs og þar verður metið hvort gefin verði út ákæra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert