BF kæmi mönnum á þing

Óttar Proppé, formaður Bjartar framtíðar.
Óttar Proppé, formaður Bjartar framtíðar. mbl.is/Styrmir Kári

Björt framtíð mælist með 6,9 prósenta fylgi í nýrri könnun Fréttablaðsins. Yrðu það niðurstöður kosninga næði flokkurinn kjörnum manni á Alþingi. Hver flokkur þarf 5 prósent til að ná inn manni.

Fylgi flokksins núna er það mesta sem flokkurinn hefur mælst með í könnunum Fréttablaðsins frá því í mars 2015. 

Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærsti flokkurinn, með 25,9 prósenta fylgi, en það er níu prósentustigum minna fylgi en flokkurinn mældist með í könnun í síðustu viku. Píratar mælast næststærstir með 19,2 prósenta fylgi en fylgi þeirra mældist 19,9 prósent fyrir viku.

Vinstri grænir mælast með 12,6 prósenta fylgi en voru með 12,9 prósenta fylgi fyrir viku, Framsóknarflokkurinn er með 12,6 prósenta fylgi en var með 11,4 prósenta fylgi fyrir viku, segir í frétt Fréttablaðsins í dag en samkvæmt frétt Fréttablaðsins í síðustu viku þá var Framsóknarflokkurinn með 12,6% þá. Í skífuriti sem fylgir frétt Fréttablaðsins í dag kemur fram að Framsóknarflokkurinn sé nú með 11,4% fylgi. 

Leiðrétt: Skífuritið er rétt - fylgi Framsóknarflokksins er 11,4% í þessari könnun en var 12,6% í síðustu viku.

Munurinn milli vikna er innan skekkjumarka í tilfelli Pírata, VG og Framsóknarflokksins.

Samfylkingin mælist með 8,8 prósent í nýju könnuninni en var með 5,9 prósent í könnuninni fyrir viku. Viðreisn mælist með 6,9 prósenta fylgi en var með 7,3 prósent fyrir viku.

Þá mælist Alþýðufylkingin með 2,2 prósenta fylgi og Íslenska þjóðfylkingin með 2 prósenta fylgi.

Könnun Fréttablaðsins var gerð þannig að hringt var í 1.258 manns dagana 3. og 4. október þar til náðist í 801 samkvæmt lagskiptu slembiúrtaki. Svarhlutfallið var því 63,7 prósent. Alls tóku 58,6 prósent þeirra sem náðist í afstöðu til spurningarinnar, 12,7 prósent sögðust óákveðin í því hvað þau ætluðu að kjósa, tæp 9 prósent sögðust ekki ætla að kjósa eða ætla að skila auðu en tæp 20 prósent neituðu að gefa upp afstöðu sína.

Í könnuninni sem Fréttablaðið, Stöð 2 og Vísir gerðu fyrir viku tóku 51,5 prósent þeirra sem svöruðu afstöðu.

Frétt Fréttablaðsins í heild

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert