Veðurstofa varar við úrhellisrigningu

Veðurstofa Íslands hefur sent frá sér viðvörun venga mikillar úrkomu og vatnavaxta næstu daga. mbl.is birtir tilkynninguna í heild sinni samkvæmt óskum Veðurstofu.

Sjá veðurvef mbl.is.

Viðvörun

Í nótt, á morgun og á fimmtudag er spáð mikilli rigningu, meira en 100 mm á sólahring, á svæðunum frá austanverðum Vatnajökli í austri, á öllu Suðaustur- og Suðurlandi og norður með Vesturlandi að Ísafjarðardjúpi.

Ásamt úrkomunni er búist við miklu afrennsli af jöklum. Því má búast við miklum vatnavöxtum í kjölfarið og þar sem mikið hefur rignt undanfarið er vatnsstaða víða há. Flóðahætta getur því skapast mjög víða á svæðinu strax í nótt, t.d. á vatnasviði Hvítár í Árnessýslum, við Ölfusá og við Norðurá og Hvítá í Borgarfirði. Viðbúið er að mikið vaxi í ám og lækjum og er fólki eindregið ráðlagt frá því að reyna að fara yfir órbrúaðar ár og læki. Jafnframt má búast við aukinni hættu á skriðuföllum á þessum slóðum.

Í þéttbýli mun mikið reyna á frárennslismannvirki og því mikilvægt að þau virki sem skyldi. Ráðlegt er að hreinsa vel frá niðurföllum og grípa til annarra aðgerða sem þurfa þykir.

Langvarandi úrkomuatburðir sem þessir eru mjög sjaldgæfir og aðstæður og afleiðingar því ókunnuglegar og jafnvel hættulegar.

Mynd frá Veðurstofu Íslands af uppsafnaðri úrkomu fram á fimmtudag.
Mynd frá Veðurstofu Íslands af uppsafnaðri úrkomu fram á fimmtudag.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert