Birtíngur setur fjögur tímarit á sölu

Tölublað Séð og heyrt.
Tölublað Séð og heyrt.

Útgáfufélagið Birtíngur stendur í endurskipulagningu rekstrar og mun setja fjögur tímarit á sölu samkvæmt heimildum mbl.is. 

Tímaritin sem um ræðir eru Sagan öll, Séð & heyrt, Nýtt líf og Júlía. Í breytingunum felast einnig uppsagnir á átta til tíu starfsmönnum fyrirtækisins. 

Önnur tímarit sem Birtíngur gefur út eru ekki til sölu, þar á meðal Vikan, Gestgjafinn og Hús & híbýli. 

Ekki náðist í forsvarsmenn Birtíngs við vinnslu fréttarinnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert