Hálka á Hellisheiði

Á Vesturlandi eru hálkublettir á fjallvegum á Snæfellsnesi og í …
Á Vesturlandi eru hálkublettir á fjallvegum á Snæfellsnesi og í Svínadal. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Hálka er á Hellisheiði. Hálkublettir eru á Sandskeiði og í Þrengslum. Hálka eða hálkublettir eru víða í uppsveitum Suðurlands, samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni. 

Á Vesturlandi eru hálkublettir á fjallvegum á Snæfellsnesi og í Svínadal, snjóþekja og éljagangur er á Bröttubrekku en hálka á Holtavörðuheiði.

Á Vestfjörðum er hálka á Mikladal og Hálfdáni. Snjóþekja og éljagandur er á Gemlufallsheiði, Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum. 

Um norðanvert landið er hálka eða hálkublettir mjög víða á fjallvegum.

Á Austurlandi eru hálkublettir á Fjarðarheiði, Breiðdalsheiði og Öxi. Hálkublettir eru á Suðausturlandi frá Sandfelli og vestur að Mýrdalssandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert