Björgunarmenn leita rjúpnaskyttu

mbl.is/Ingólfur Guðmundsson

Björgunarsveitir Landsbjargar leita nú skyttu sem gekk til rjúpa frá sumarhúsabyggðinni í landi Einarsstaða á Héraði, en óskað var eftir aðstoð þegar hún skilaði sér ekki til byggða fyrir myrkur.

Útkallið barst laust fyrir kl. 20.

Björgunarsveitir frá Eyjafirði suður til Öræfasveitar hafa verið kallaðar út, auk þess sem þyrla Landhelgisgæslunnar mun flytja björgunarsveitarmenn með sporhunda á leitarsvæðið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert