Lenti í árekstri réttindalaus og í vímu

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Á annan tug umferðaróhappa voru tilkynnt til lögreglunar á Suðurnesjum í vikunni að því er segir í fréttatilkynningu frá embættinu.

Tveir bílar skullu saman á Bónusplaninu í Njarðvík og viðurkenndi annar ökumannanna að hafa verið að neyta fíkniefna og að hann væri ekki með ökuréttindi. Var hann handtekinn og fluttur á lögreglustöð. Ökumaður hinnar bifreiðarinnar kenndi eymsla eftir áreksturinn og fór hann á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar.

Þá missti ökumaður stjórn á bíl sínum á Reykjanesbraut með þeim afleiðingum að hann hafnaði á vegriði. Bifreiðin var óökufær eftir óhappið, en ökumaðurinn slapp ómeiddur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert