Hótun barst Útlendingastofnun

Útlendingastofnun er til húsa að Skógarhlíð 6 í Reykjavík.
Útlendingastofnun er til húsa að Skógarhlíð 6 í Reykjavík. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Útlendingastofnun barst hótun í morgun sem tilkynnt hefur verið til lögreglunnar. Upplýsingafulltrúi stofnunarinnar vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið við mbl.is.

Lögreglubíll er fyrir utan húsnæði stofnunarinnar í Skógarhlíð 6. Höfuðstöðvar slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins eru í nágrenninu. Slökkviliðinu hefur verið gert viðvart um málið og er það í viðbragðsstöðu. 

Engum er nú hleypt inn í húsið en samkvæmt heimildum mbl.is snýst málið um hælisleitanda sem hefur hótað að kveikja í sér. 

Fréttin verður uppfærð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert