„Þráhyggja SDG-hópsins að ágerast“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. mbl.is/Ómar Óskarsson

„Fréttamaður RÚV ruddist inn í hundrað ára afmælisveislu með dónaskap og framgöngu sem ég hef ekki kynnst oft af hálfu fréttamanna.“ Þetta segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, alþingismaður og fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, á Facebook-síðu sinni.

Tilefni skrifanna er líkast til viðtal sem Sunna Valgerðardóttir, fréttamaður RÚV, tók við Sigmund í gær. Spurði hún meðal annars hverju það sætti að hann hefði ekki mætt á þingfundi það sem af er þessu þingi, sem endaði með því að hann sagði viðtalinu lokið og gekk í burtu.

Frétt mbl.is: „Voðaleg reiði er þetta í ríkisútvarpinu“

Í pistli sem hann birtir á Facebook-síðu sinni, segir hann að svo virðist sem þráhyggja „SDG-hópsins á RÚV“ sé að ágerast frekar en hitt.

„Tilgangurinn með heimsókn í afmælið virtist eingöngu vera sá að reyna að ýta undir illdeilur í Framsóknarflokknum í tilefni dagsins og búa til frétt um að ég hafi ekki setið nógu mikið í Alþingishúsinu undanfarna daga,“ skrifar Sigmundur.

„Það er reyndar erfitt mál við að eiga því SDG-hópurinn hefur tilhneygingu til að hafa bæði áhyggjur af því hvar ég er og hvar ég er ekki.“

Sigmundur Davíð í afmælisveislu flokksins fyrir norðan, en þangað mættu …
Sigmundur Davíð í afmælisveislu flokksins fyrir norðan, en þangað mættu um 80 manns. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Að jafnaði tveir til þrír menn í salnum

Segir hann þá að þingmenn vinni við fleira en að sitja í þingsalnum.

„Sem betur fer því að jafnaði sitja tveir til þrír menn í salnum. Þingmenn eiga að fylgjast með þingfundum eins og kostur er en einnig að hitta fólk, kynna sér mikilvæg mál, sinna flokknum sínum, kjósendum og öðrum landsmönnum.“

Bendir hann á að á Alþingi hafi verið fjórir þingfundardagar eftir þingsetninguna 6. desember, þar af hafi sá lengsti varað í rúma fjóra klukkutíma.

Ótal dæmi um að þingmenn hverfi vikum saman

„Þar af einn dagur eftir að þingmenn Framsóknar fengu skrifstofur. Það hefur ekki tekist að mynda ríkisstjórn, það er ekki hægt að skipa í nefndir nema til bráðabirgða og helsta viðfangsefni þingsins er munaðarlaust fjárlagafrumvarp samið af embættismönnum.

Ríkisútvarpið hefur hins vegar mestar áhyggjur af því að ég hafi ekki setið í þingsalnum þessa fjóra daga. Eftir því sem ég kemst næst er þetta í fyrsta skipti sem stofnunin sér ástæðu til að gera slíka frétt. Þó hef ég séð ótal dæmi um að þingmenn hafi ekki aðeins sleppt því að sitja í þingsal heldur horfið vikum saman án þess þó að vera saknað.“

Segist hann að lokum geta vonandi dregið úr áhyggjum RÚV á Akureyri með því að upplýsa að hann hafi fylgst vel með gangi mála á þinginu „þessa skrýtnu daga en um leið náð að sinna öðrum verkefnu sem falla undir starf þingmanns eins og síðar mun koma í ljós.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert