Jarðskjálfti í Bárðarbungu

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Jarðskjálfti sem var 3,5 að stærð átti sér stað í dag klukkan rúmlega hálftólf norðanmegin í Bárðarbunguöskjunni samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands.

Nokkrir eftirskjálftar fylgdu í kjölfarið en engin merki sjást hins vegar um gosóróa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert