Var fresturinn framlengdur?

Einn vinsælasti ferðamannastaður landsins er Jökulsárlón á Breiðamerkursandi.
Einn vinsælasti ferðamannastaður landsins er Jökulsárlón á Breiðamerkursandi. mbl.is/Einar Falur Ingólfsson

Var frestur ríkisins til að taka af­stöðu til nýt­ing­ar for­kaups­rétt­ar á jörðinni Felli við Jök­uls­ár­lón liðinn þegar ákveðið var að nýta forkaupsréttinn 9. janúar? Samkvæmt frétt Fréttablaðsins í dag rann hann út 3. janúar en í frétt mbl.is 8. nóvember kemur fram að sýslumaðurinn á Suðurlandi hafi framlengt frestinn til 10. janúar.

Í frétt mbl.is: Fresturinn framlengdur til 10. janúar, sem var skrifuð 8. nóvember í fyrra kemur fram að sýslumaður­inn á Suður­landi hafi daginn áður ákveðið að fram­lengja frest rík­is­ins til að taka af­stöðu til nýt­ing­ar for­kaups­rétt­ar á jörðinni Felli við Jök­uls­ár­lón til 10. janú­ar nk. Þar er vísað í svar fjár­málaráðuneyt­is­ins við fyr­ir­spurn mbl.is.

Frétt mbl.is: Fresturinn var liðinn

Rík­is­sjóður ákvað á mánudag að nýta for­kaups­rétt vegna jarðar­inn­ar Fells í Suður­sveit á grund­velli laga um nátt­úru­vernd, en jörðin er á nátt­úru­m­inja­skrá. Jörðin Fell á land að aust­ur­strönd Jök­uls­ár­lóns á Breiðamerk­urs­andi en lónið er einn vin­sæl­asti ferðamannastaður lands­ins.

Kem­ur þetta fram á heimasíðu fjár­mála- og efna­hags­ráðuneyt­is­ins en málið var rætt á rík­is­stjórn­ar­fundi á mánudag þar sem Bjarni Bene­dikts­son þáverandi fjár­málaráðherra kynnti það. Eign­in var seld á nauðung­ar­sölu í haust að beiðni eig­enda jarðar­inn­ar í þeim til­gangi að slíta sam­eign. Jörðin hafði áður verið seld til Fögru­steina, dótt­ur­fé­lags Thule In­vest­ments.

Sölu­verðið var 1.520 millj­ón­ir króna og geng­ur rík­is­sjóður inn í kaup­in á því verði, en gert var ráð fyr­ir kaup­un­um í fjár­auka­lög­um árs­ins 2016. Frest­ur rík­is­sjóðs til þess að ganga inn í kaup­in renn­ur út á morg­un 10. janú­ar sam­kvæmt ákvörðun sýslu­manns­ins á Suður­landi en frest­ur­inn var upp­haf­lega til 11. nóv­em­ber en var fram­lengd­ur.

Tals­verð umræða skapaðist um jörðina Fell eft­ir að frétt­ist að hún væri til sölu og hvöttu marg­ir til þess að rík­is­sjóður keypti hana í ljósi þess að hún ligg­ur að Jök­uls­ár­lóni. Meðal þeirra sem lýstu þeirri skoðun sinni að ríkið ætti að kaupa jörðina var Sig­urður Ingi Jó­hanns­son for­sæt­is­ráðherra.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert