Milljarðatap vegna verkfalls sjómanna

Verkfallið hefur valdið stórtapi. Góður gangur er í viðræðum.
Verkfallið hefur valdið stórtapi. Góður gangur er í viðræðum. mbl.is/Golli

Gera má ráð fyrir því að sjómannadeilan hafi kostað þjóðarbúið um 12-15 milljarða króna frá því verkfall hófst 14. desember. Er þar miðað við útflutningsverðmæti sjávarafurða upp á 500 milljónir króna á dag.

Svavar Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri fisksölufyrirtækisins Sæmarks, segir að á mörkuðum sé ófremdarástand og að viðskiptavinir fyrirtækisins séu uggandi yfir öryggi íslenskra markaða. „Samskiptin eru góð. Við höfum náð að halda lífi í þeim sem mest hafa þurft fisk með hjálp dagróðrabáta,“ segir Svavar.

Hann segir að á góðviðrisdögum sé hægt að draga um 100 tonn að landi, mestmegnis af þorski. Það hrökkvi þó skammt. „Kerfið er orðið mjög svelt og þeir sem mest á okkur stóla eru orðnir langeygir eftir því að þessi staða leysist,“ segir Svavar í umfjöllun um verkfall sjómanna og afleiðingar þess í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert