Björgunarsveitamenn hafa klárað öll verkefni og eru á heimleið eftir langan og erfiðan dag. Þetta staðfestir Þorsteinn G. Gunnarsson, upplýsingafulltrúi Landsbjarga.
Um 300 björgunarsveitamenn voru að störfum í dag eftir að áherslum í leit var breytt eftir að lík Birnu Brjánsdóttur fannst við Selvogsvita. Náði leitarsvæðið frá Eyrarbakka og langleiðina til Grindavíkur. Einhver fjöldi verður í viðbragðsstöðu á morgun ef eitthvað skyldi koma upp.