Tjá sig ekki frekar um rannsókn í dag

Lögreglan ætlar ekki að tjá sig frekar við fjölmiðla í …
Lögreglan ætlar ekki að tjá sig frekar við fjölmiðla í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun ekki tjá sig frekar um rannsókn á máli Birnu Brjánsdóttur í dag. Þetta var ítrekað við fjölmiðla með tölvupósti nú kl. 13. Í tilkynningu segir að rannsókninni miði vel og að yfirheyrslur yfir sakborningum séu áformaðar í dag.

Lögreglan segist hafa fullan skilning á mikilvægi fjölmiðla og því hlutverki sem þeir gegna og verður leitast við að upplýsa þá, komi fram nýjar upplýsingar sem varða málið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert