Miðlunartillaga lögð fram

Ríkissáttasemjari hefur lagt fram miðlunartillögu í kjaradeilu Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT) og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá embættinu en kjarasamningur deiluaðila rann út 31. október 2015. Deilunni var vísað til ríkissáttasemjara í lok apríl árið eftir.

„Haldnir hafa verið 20 árangurslausir fundir í málinu og telur ríkissáttasemjari að frekari sáttaumleitanir beri ekki árangur. Samkomulag hefur náðst á milli samningsaðila um öll meginatriði, að undanskildu því að hvaða leyti samningslaust tímabil er bætt og gildistíma samningsins. Því hefur ríkissáttasemjari lagt fram miðlunartillögu til lausnar deilunni sem byggir á fyrirliggjandi samkomulagsdrögum auk þess sem tekið er á útistandandi ágreiningi,“ segir í tilkynningunni. 

Félagsmenn í FT annars vegar og stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga hins vegar munu greiða atkvæði um miðlunartillöguna en hún verður send til þeirra sem atkvæðisrétt hafa á rafrænu formi og fer atkvæðagreiðslan fram rafrænt. Gert er ráð fyrir að atkvæðagreiðslan hefjist sem fyrst og ljúki klukkan 13:00 föstudaginn 10. febrúar.

„Ríkissáttasemjari er viðstaddur þegar niðurstaða atkvæðagreiðslunnar er kunngjörð ásamt einum fulltrúa frá hvorum aðila. Miðlunartillagan verður ekki birt öðrum en þeim sem hlut eiga að máli fyrr en atkvæði hafa verið greidd um hana, sbr. 1. mgr. 29. gr. l. 80/1938 og er innihald hennar háð trúnaði þar til niðurstaða liggur fyrir.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert