Kortleggja kolefnisfótspor Eyjafjarðarsveitar

Frá Eyjafjarðarsveit.
Frá Eyjafjarðarsveit. mbl.is/Sverrir Vilhelmsson

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar hefur samþykkt að skoða möguleika á kolefnisjöfnun og upptöku kolefnisbókhalds fyrir Eyjafjarðarsveit.

„Það hefur verið mikil umræða um losun kolefnis frá landbúnaðarstarfsemi og heldur neikvæð í garð bænda. Ég tel ekki augljóst að allir horfi á heildarmyndina í því samhengi,“ er haft eftir Jóni Stefánssyni oddvita Eyjafjarðarsveitar, í tilkynningu.

„Bændur eru víða mjög atkvæðamiklir skógræktendur og hafa margir hverjir plantað mikið á jörðum sínum samhliða búrekstri sínum, án þess að landsmenn hafi veitt því sérstaka athygli. Þá má ekki líta fram hjá því að hér í Eyjafjarðarsveit eru til að mynda stór votlendissvæði sem skapa sterkt mótvægi við losun kolefnis,“ bætir Jón við.

Hann telur að bændur og landeigendur í Eyjafjarðarsveit hafi síst legið á liði sínu við skógrækt og uppgræðslu lands og margir hafi áhuga á að ráðstafa stórum svæðum á jörðum sínum fyrir frekari skógrækt. Landbúnaður sé blómlegur og umfangsmikill í Eyjafjarðarsveit og því fylgi nokkur losun kolefnis.

„Bændur og aðrir íbúar sveitarfélagsins eru almennt framsæknir í umhverfismálum og vilja vera í fremstu víglínu á þeim vettvangi. Við ætlum því að reyna að kortleggja kolefnisfótspor Eyjafjarðarsveitar og kanna hvort raunhæft sé að Eyjafjarðarsveit geti orðið kolefnishlutlaust sveitarfélag í náinni framtíð.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert