Margir leigubílar fastir í snjónum

Erfitt hefur verið að ná í leigubíla það sem af …
Erfitt hefur verið að ná í leigubíla það sem af er degi. mbl.is/Jim Smart

Leigubílar hafa átt erfitt með að komast leiðar sinnar í morgun, rétt eins og aðrir bílar, og hafa margir þeirra setið fastir í snjónum.

Mikil aðsókn hefur verið í leigubíla það sem af er degi, meðal annars frá fólki sem hefur þurft að komast í vinnuna. Einnig þurftu margir að bíða eftir leigubíl í miðbænum í nótt vegna slæmrar færðar.

Að sögn leigubílstjóra hjá BSR sem blaðamaður mbl.is ræddi við höfðu margir leigubílar fest sig í fannferginu og var skorturinn á leigubílum því töluverður.

Sjálfur hafði leigubílstjórinn þurft að sækja kollega sína sem komust hvorki lönd né strönd í snjónum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert